Vangaveltur (pælingar)
Velkomin til Hollands
Að eiga von á barni líkt og að skipuleggja draumaferð til Ítalíu.
Þú nærð þér í heilan helling af ferðabæklingum og skipuleggur ævintýraferðina
þína.
Collosseum, Michelangelo, David, skakki turninn og bátsferð um Feneyjar.
Þú lærir nytsamlega frasa á ítölsku
Allt er þetta einstaklega spennandi.
Eftir margra mánaða eftirvæntingu kemur loksins dagurinn.
Þú nærð í töskuna sem þú hafðir tekið til og ferð af stað.
Nokkrum tímum síðar lendir svo flugvélin.
Flugfreyjan talar í hátalarakerfið og segir:
„Velkomin til Hollands“.

„Hollands“, hrópar þú.
Hvað meinarðu með Holland?
Ég hafði planað ferð til Ítalíu!
Allt mitt líf hef ég dreymt um að koma til Ítalíu.
En ferðaáætlunin breyttist.
Flugvélin lenti í Hollandi, og hér þarftu að vera.
Eftir að hafa dvalið í þó nokkurn tíma í Hollandi og náð áttum,
Ferðu að skoða þig um
og kemst að því þá, að það eru vindmyllur í Hollandi....
og í Hollandi eru túlípanar
í Hollandi er Rembrand!!
En allir sem þú þekkir ferðast til og frá Ítalíu
og tala um hversu dásamlegt það er.
Það sem eftir er af lífi þínu munt þú segja
„Já, það var þar sem ég hefði líka átt að vera og það var þangað sem ég hafði ákveðið að fara“.
Sársaukinn vegna þess sem mun aldrei verða, mun aldrei, aldrei nokkurn tíma hverfa...
Því að missa draum sem þennan, er missir sem hefur mikla þýðingu.
Aftur á móti... ef þú eyðir lífi þínu í að syrgja það að þú hafir aldrei komist til Ítalíu, verður þú aldrei í þeirri stöðu að geta notið þess hvað það er ótrúlega sérstakt og undursamlegt að koma til Hollands!
Höfundur er móðir blindrar stúlku.

