Spjallsíður foreldra
Við höldum úti tveimur skilaboðasíðum á Yahoo annars vegar er það http://groups.yahoo.com/group/sjonskertborn/ sem er ætlað foreldrum sjónskertra barna, en hins vegar er það http://groups.yahoo.com/group/blindborn/ ætlað foreldrum blindra barna.
Þarna er vettvangur þar sem foreldrar geta t.d. spjallað, leitað ráða, kvartað eða fengið tækifæri til að monta sig af börnunum sínum við aðra foreldra sem öll skilja aðstæður hvors annars.
Ef þú átt sjónskert eða blint barn og langar til að deila reynslu þinni, leita ráða eða bara að kynnast foreldrum annarra sjónskertra eða blindra barna, geturðu skráð þig með því að senda tölvupóst á inga@blind.is með þeim skilaboðum að þú viljir skrá þig á póstlistann. Þér verður þá svarað um hæl og þér veittur aðgangur. Allar nýjar fjölskyldur eru hjartanlega velkomnar!!


