Fréttir og tilkynningar

Foreldrafundur 1. september

3.9.2007

Foreldrafundur var haldinn 1. september s.l. heima hjá Ingu Dóru, og var mæting með þeim betri sem sést hefur í langan tíma.

Það mættu 13 foreldrar og Helga Einarsdóttir var gestur. Helga kynnti fyrir okkur stöðu menntamála blindra og sjónskertra barna okkar með tilliti til bráða-aðgerða sem voru samþykktar af ríkisstjórninni í sumar.  Það lítur út fyrir að nú muni loksins þjónusta við börnin okkar breytast til batnaðar innan skólakerfisins.  Búið er að ráða þrjá nýja blindrakennara/kennsluráðgjafa til viðbótar við Helgu og hafa tveir þeirra þegar hafið fjarnám á þessu sérfræðisviði.  Þær sem voru ráðnar eru:  Ingunn Hallgrímsdóttir leikskóla og blindrakennari, Dóra Soffía Þorláksdóttir grunnskólakennari og Elfa Svanhildur Hermannsdóttir grunnskólakennari.  Dóra og Elfa koma til með að stunda fjarnámið næsta árið, en munu samhliða því vinna með Helgu og Ingunni úti í skólunum við kennsluráðgjöf.

Einnig hafa verið fylltar fjórar stöður kennara í umferli og athöfnum daglegs lífs. Baldur Gylfason sálfræðingur, Guðbjörg Árnadóttir kennslufræðingur, Guðný Katrín Einarsdóttir þroskaþjálfi og Sabína Steinunn Halldórsdóttir íþróttakennari voru ráðin í þau störf.  Þau fara til Dublin í sérfræðinám núna á haustmánuðum og stunda það næstu tvö ár samhliða starfinu hér heima.

Með þessu hefur verið tekið mikilvægt skref til að efla þjónustu við blinda og sjónskerta nemendur.  Frekari úrbætur eru í vinnslu, en þar stærst er tillaga  um að stofnuð verði miðlæg miðstöð með allri þjónustu fyrir blinda og sjónskerta. 

Að öðru leyti var rætt á foreldrafundinum starf vetrarins hvað varðar tómstundir og íþróttastarf fyrir börnin, og komu fram ýmsar skemmtilegar hugmyndir sem verður svo hent í framkvæmd nú þegar.  Ber þar helst að minnast á að myndlistarnámskeið hefur verið skipulagt í samvinnu við Myndlistarskólann í Reykjavík þar sem unnið verður verkefni með tilliti til blindra og sjónskertra barna.  Námskeiðinu lýkur svo með sýningu barnanna á verkum sínum, og verður þá boðið bæði ættingjum og kennurum úr skólum barnanna, sem geta þá örugglega nýtt sér margt af þeirri hugmyndavinnu sem hefur skapast í kringum námskeiðið.  Ef þið viljið frekari upplýsingar eða til að skrá börnin ykkar hafið þá endilega samband við Ingu Dóru í gegnum netfang inga@blind.is sem fyrst.

Á næstu dögum mun svo koma tilkynning um fyrsta 'hitting' haustsins, og stefnum við á að fara í vettvangsferð með börnin og þau systkini sem hafa áhuga. 

Frekari og nánari upplýsingar um vetrarstarfið berast ykkur fljótlega.

 



 

Stoðflokkar



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefforitunvefforitun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.