Fréttir og tilkynningar

Aðventuskemmtun 5. des. og fleira

30.11.2010

Aðventuskemmtun Foreldradeildar og sjóðsins Blind börn á Íslandi verður á sunnudaginn 5. des. kl. 14.

Á sunnudaginn 5. desember kl. 14. verður hin árlega aðventuskemmtun Foreldradeildar Blindrafélagsins og sjóðsins Blind börn á Íslandi. Skemmtunin hefst kl. 14 og er dagskráin sem hér segir:

Piparkökumálun og föndur
Guðfinnur, Eyþór og Hlynur úr UngBlind spila jólalög
Styrkur frá Leonard vegna sölu á Bláliljunni afhentur
Jólasveinninn mætir á svæðið

Við vonumst til þess að sjá sem flesta í jólaskapi.

Við viljum einnig nota tækifærið og minna á að þann 7. desember verður Þjónustu- og Þekkingarmiðstöðin með námskeiðið "Hreyfiþroski blindra og sjónskertra barna - Tækifæri til íþróttaiðkunar". Við hvetjum ykkur til þess að skrá ykkur á það.

Foreldradeildin og Blind börn á Íslandi

 

Stoðflokkar



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefforitunvefforitun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.