Fréttir og tilkynningar

Fyrsta opna hús vetrarins hjá Foreldradeild Blindrafélagsins 23. okt.

13.10.2010

Foreldradeildin verður með opið hús í húsnæði Blindrafélagsins 23. okt. kl. 14.

Opna húsið byrjar kl 14. og verður dagskrá fyrir börn og fullorðna. Við foreldrarnir ætlum að byrja á að hlýða á Eyþór Eðvarðsson frá Þekkingarmiðlun. Eyþór er vinnusálfræðingur að mennt og ætlar að tala við okkur um samstarf og samskipti. Við erum viss um að þetta verði skemmtilegt spjall sem allir geti haft gagn og gaman af.

Á meðan foreldrarnir hlýða á fyrirlesturinn munu yngri krakkarnir bregða á leik (það verður "starfsfólk" á staðnum). Þau eldri munu setjast niður með Eyþóri og fleirum úr UngBlind sem munu aðstoða þau við undirbúning að fyrsta krakkahorninu í Völdum greinum. Gísli Helgason vill endilega að krakkarnir séu með "Krakkahorn" í Völdum greinum og munu þau byrja að vinna að fyrsta horninu á opna húsinu með því að taka viðtöl hvort við annað og spjalla um hitt og þetta skemmtilegt.

Þegar fyrirlesturinn klárast hittumst við öll og förum í "drekkutíma". Þá byrjar nú gamanið fyrir alvöru og allir fara í BINGÓ saman. Það verður fullt að skemmtilegum vinningum sem við kynnum þegar nær dregur. (spennó!)

Hlökkum til að sjá sem flesta.

 

Stoðflokkar



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefforitunvefforitun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.