Fréttir og tilkynningar
Vorhátíð í Hamrahlíð!
Sjóðurinn Blind börn á Íslandi býður til vorhátiðar í Hamrahlíð 12 júní n.k.
Sjóðurinn Blind börn á Íslandi býður til vorhátiðar í Hamrahlíð.
Krakkar bjóðið pabba og mömmu, afa og ömmu, systkinum og góðum vinum með á fjölskylduhátíð í Hamrahlíð 17, föstudaginn 12. júní n.k. kl. 17:00.
Hoppukastali verður á staðnum, og á boðstólum verður nóg af puslum, íspinnum og drykkjum við allra hæfi.
Við förum í leiki í góða veðrinu, og Páll Óskar kemur í heimsókn ásamt fleirum góðum gestum, sem koma til með að aðstoða okkur við að skapa hina einu sönnu sumarstemningu.
Sjáumst!
Stjórn sjóðsins Blind börn á Íslandi

