Fréttir og tilkynningar
AÐVENTUSKEMMTUN
Foreldradeild Blindrafélagsins boðar til aðventuskemmtunar í samstarfi við sjóðinn Blind börn á Íslandi sunnudaginn 7.desember klukkan .14.00 - 16.00 í Hamrahlíð 17
Stofnendur sjóðsins Blind börn á Íslandi Jón Axel og Gulli Helga bjóða sjónskertum börnum og fjölskyldum þeirra upp á fjölbreytta skemmtidagskrá núna á aðventunni sem endranær. Byrjað verður á því að útbúa jólaföndur en síðan mun sjálfur Stúfur koma og skemmta börnunum og færa þeim góðan glaðning.
Svo er það spurningin hvaða stórstjörnur þeir félagar Jón Axel og Gulli Helga geta töfrað til okkar í heimsókn í ár.
Mætum öll, hress og kát!!
Foreldadeild

