Fréttir og tilkynningar

Að sjá illa en líða vel

19.5.2008

Bókin Að sjá illa en líða vel eftir Krister Inde kemur út í íslenskri
þýðingu í maí 2008 og verður vistuð á heimasíðu Blindrafélagsins.
www.blind.is

Bókin verður einnig fáanleg sem hljóðbók. Þessi bók kom
fyrst út í Svíþjóð árið 2003 og hefur verið þýdd á nokkur erlend
tungumál. Sigrún Bessadóttir, félagsmaður í Blindrafélaginu, sá um
þýðingu bókarinnar.

Krister Inde starfar að málefnum blindra og sjónskertra hjá Certec
við Lundarháskóla í Svíþjóð. Hann er sjálfur sjónskertur og skrifar
bókina út frá eigin reynslu. Krister Inde er mjög vinsæll fyrirlesari
og mun segja frá reynslu sinni og kynna bók sína fimmtudaginn 12.
júní í húsnæði Blindrafélagsins, Hamrahlið 17, Reykjavík. Erindið
verður túlkað á íslensku og hefst kynningin kl. 17:00.

Krister er ekkert að skafa utan af hlutunum í máli sínu og
kímnigáfuna vantar ekki. Það er mikilvægt að leysa sig úr viðjum
staðlaðra viðhorfa og vera maður sjálfur, hætta að skammast sín fyrir
að sjá illa og hlusta á venjulegan einstakling með óvenjulegan
eiginleika. Ef þig langar að sjá hlutina í nýju ljósi og fá að vita
hvernig maður getur hugsað láttu þá fyrirlesturinn ekki fram hjá þér
fara og spurðu Krister Inde þeirra spurninga sem brenna á þér

 

Stoðflokkar



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefforitunvefforitun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.