Fréttir og tilkynningar

Tillögur framkvæmdanefndar um breytt fyrirkomulag í þjónustu við blinda, sjónskerta og daufblinda.

28.11.2007

Vegna fréttatilkynningar frá menntamálaráðuneytinu 16. nóvember s.l.

Viljum við benda á að fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér málið nánar er hægt að nálgast skýrslu framkvæmdanefndarinnar undir eftirfarandi tengli: http://www.menntamalaraduneyti.is/nyrit/nr/4306

Fréttatilkynninguna má lesa á síðu menntamálaráðuneytisins hér: http://www.menntamalaraduneyti.is/frettir/Frettatilkynningar/nr/4304

Í stuttu málli segir tilkynningin að tillögur framkvæmdanefndar um breytt fyrirkomulag í þjónustu við blinda, sjónskerta og daufblinda hafi verið ræddar á fundi ríkisstjórnar og ráðuneytisstjórum menntamálaráðuneytis, heilbrigðisráðuneytis og félagsmálaráðuneytis falið að vinna að framkvæmd málsins á grundvelli tillagna nefndarinnar.

 Þetta þýðir í grunninn að tillögur nefndarinnar voru samþykktar, og verður nú farið að útfæra framkvæmd.  Þetta er stór áfangi og vel þess virði að fagna honum.

Blindrafélagið er að undirbúa kynningarfund fyrir félagsmenn þar sem farið verður yfir tillögurnar og spurningum sem kunna að vakna verður reynt að svara.

Dagsetning og nánari dagskrá verður auglýst síðar.



 

Stoðflokkar



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefforitunvefforitun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.