Fréttir og tilkynningar

Aðventuskemmtun

28.11.2007

Foreldradeild Blindrafélagsins boðar til hinnar árlegu aðventuskemmtunar í samstarfi við sjóðinn Blind börn á Íslandi laugardaginn 8. desember kl. 14.00-16.00 í Hamrahlíð 17.

Stofnendur sjóðsins Blind börn á Íslandi, þeir Jón Axel og Gulli Helga, bjóða sjónskertum börnum og fjölskyldum þeirra upp á fjölbreytta skemmtidagskrá núna á aðventunni eins og undanfarin ár.

Byrjað verður á því að útbúa jólaföndur, en síðan mun sjálfur Stúfur koma, skemmta börnunum og færa þeim góðan glaðning.

Svo er það spurningin hvaða stórstjörnur þeir félagar Jón Axel og Gulli Helga ná að töfra til okkar í heimsókn í ár.

Öll börn eru hvött til þess að mæta og taka foreldra, systkini, afa eða ömmu með.



 

Stoðflokkar



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefforitunvefforitun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.