Fréttir og tilkynningar
Bókin: "Einn skóli fyrir alla" kemur út.
Bókin var gefin út af sænsku blindrasamtökunum og er eftir tvo uppeldisfræðinga sem að auki eru foreldrar alvarlega sjónskertra barna. Sigrún Bessadóttir þýddi yfir á íslensku fyrir Blindrafélagið.
Bókin gefur innsýn í tilveru blindra og sjónskertra barna. Hún tekur á leik, og félagsmótun þeirra og hvernig leik- og grunnskólar geta skipulagt starfsemi sína þannig að blind og sjónskert börn eigi kost á að taka virkan þátt í því starfi sem þar fram fer.
Bókin mætir brýnni þörf foreldra blindra og sjónskertra barna á efni um félagsþroska og uppeldi barna sinna.
Í tilefni af útgáfu bókarinnar verður haldinn foreldrafundur í Hamrahlíð 17, á degi Hvíta stafsins 15. október, kl. 20:00. Öllum foreldrum verður þá gefið eintak af bókinni, og Rannveig Traustadóttir (sem veitti faglega ráðgjöf um íslenskt innihald bókarinnar) ætlar að kynna bókina.
Allir að mæta!

