Fréttir og tilkynningar

Sjóðurinn Blind börn á Íslandi

20.9.2007

Sjóðurinn Blind börn á Íslandi veitir styrki til blindra og sjónskertra barna á Íslandi allt að 18 ára aldri.

Sjóðurinn veitir einungis styrki vegna atburða og eða hluta sem eru annars ekki styrktir af almannatryggingum, Svæðaskrifstofu málefna fatlaðra, félagsþjónustu sveitafélaga eða af öðrum stofnunum eða sjóðum sem koma að málum blindra og sjónskertra barna

Úthlutað verður styrkjum úr sjóðnum fyrir fyrsta vetrardag sem er 27.október næstkomandi.  Umsóknir um styrki þurfa að hafa borist eigi síðar en 30.september 2007

Umsóknir skal senda til Blindrafélagsins, Hamrahlíð 17  skulu vera skriflegar og þeim fylgja kostnaðaráætlun vegna þess sem sótt er um. 

 



 

Stoðflokkar



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefforitunvefforitun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.