Fréttir og tilkynningar

Myndlistarnámskeið fyrir blind og sjónskert börn

17.9.2007

Myndlistarskólinn í Reykjavík stendur í samvinnu við Blindrafélagið fyrir myndlistarnámskeiði fyrir blind og sjónskert börn á haustönn 2007.

Námskeiðið verður fjölbreytt og sniðið að þörfum hvers og eins barns. Kennarar eru Brynhildur Þorgeirsdóttir og Margrét Blöndal, og eru þær báðar afar áhugasamar og stútfullar af skemmtilegum hugmyndum.  Gerður Liefsdóttir, sem hefur reynslu af kennslu í Öskjuhlíðarskóla mun einnig koma að verkefninu á einn eða annan hátt.

Þeim til ráðgjafar verður Rannveig Traustadóttir sjónráðgjafi, sem er í námsleyfi í Danmörku en kemur til með að fylgjast með í gegnum tölvupóst. 

Stefnt er að því að halda sýningu af listaverkum barnanna í lok námskeiðsins, og verður þangað boðið foreldrum, fjölskyldu, vinum og kennurum barnanna úr þeirra heimaskólum.  Við teljum það geta verið fróðlegt fyrir alla að sjá hvernig blind og sjónskert börn geta nýtt sér margs konar efnisvið til listsköpunnar.

Námskeiðið hefst 9. október og lýkur 20. nóvember, fyrir yngri hóp (6-9 ára).  Eldri hópurinn (10-14 ára) byrjar 27 nóvember og lýkur 22. janúar.

Blindrafélagið greiðir niður námsgjöldin en foreldrar greiða 7000 kr. fyrir yngri börnin en 8000 fyrir þau eldri.

Þeir sem vilja skrá börnin sín geta gert það með því að hafa samband við Ingu Dóru, en hún er með netfangið inga@blind.is.

 

 



 

Stoðflokkar



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefforitunvefforitun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.