Fréttir og tilkynningar

Notar barnið þitt heimasíðu skólans?

17.9.2007

Þó nokkrir foreldrar bent á að heimasíður skólanna eru ekki aðgengilegar blindum og sjónskertum börnum.

Þar sem að nú til dags fara samskipti barna-kennara-foreldra mikið fram á heimasíðum skólanna, þykir okkur mikilvægt að öll börn hafi aðgang að þessum síðum.

Við viljum því benda foreldrum á að það er hægt að vísa skólastjórnendum á vefsvæðið www.stillingar.is. Þar eru upplýsingar um hvernig hægt sé að koma til móts við þarfir barna sem eiga erfitt með að lesa vegna sjónskerðingar og lesblindu.  Þetta þarf ekki að kosta mikið, því þarna eru sýndar leiðir til að setja upp þjónustuna sjálfur. 

Einnig viljum við benda á vefinn www.sja.is.  Þar er hægt að fá aðgengisvottun á heimsíður og ráðgjöf um hvernig best sé að laga það sem laga þarf.

 Endilega komið þessu áleiðis til skólanna!



 

Stoðflokkar



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefforitunvefforitun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.