Forsíðugrein


Foreldradeild blindra og sjónskertra barna leitast eftir því að veita þeim sem eru uppalendur blindra og/eða sjónskertra barna stuðning frá foreldrum til foreldris.

Við getum okkar á milli skipts á gríðarlega miklu magni af upplýsingum, og þannig stefnum við að því að slíta foreldra blindra og sjónskertra barna úr þeirri einangrun sem margir finna fyrir eftir að greining fæst.

Það eru fjölmargar spurningar sem koma upp varðandi uppeldi blindra og sjónskertra barna og iðulega þarf að glíma við önnur vandamál og úrlausnarefni en flestir aðrir foreldrar fást við. Til að einangrast ekki er besta leiðin að koma sér upp öflugu tengslaneti fólks í svipuðum aðstæðum.

Um leið og þú ferð að tala við fólk um aðstæður þínar býðst þér hjálp. Á sama hátt, þegar þú ferð að hlusta á aðra sérðu hvernig þú getur hjálpað þeim.

Markmið okkar:

  • að miðla fræðslu til foreldra og almennings tengd blindu og sjónskerðingu.
  • að vinna sameiginlega að hagsmunum blindra og sjónskertra barna.
  • að bæta úr þeirri brýnni þörf að foreldrar blindra og sjónskertra barna á Íslandi sem og börnin sjálf eigi sér málsvara.  Í því felst m.a. að koma réttinda- og hagsmunamálum þeirra á framfæri við opinbera aðila sem og einkaaðila.
  • að leitast eftir því að eiga farsælt samstarf við sérfræðinga og fagaðilla sem koma nálægt blindum og sjónskertum börnum.
  • að vera vettvangur og bakhjarl  foreldra blindra og sjónskertra barna og vera þeim stuðningur í þessu miklvæga uppeldisstarfi og leiða þannig til aukinnar velferðar barna okkar og auknum líkum á að þeim sé skilað út í lífið sem sjálfstæðum og hæfum einstaklingum.


 

Fréttir

Aðventuskemmtun 5. des. og fleira

Aðventuskemmtun Foreldradeildar og sjóðsins Blind börn á Íslandi verður á sunnudaginn 5. des. kl. 14. Lesa meira
 

Fyrsta opna hús vetrarins hjá Foreldradeild Blindrafélagsins 23. okt.

Foreldradeildin verður með opið hús í húsnæði Blindrafélagsins 23. okt. kl. 14. Lesa meira
 

Aðalfundur á Sólheimum

Aðalfundur foreldradeildar var haldinn á Sólheimum 17. apríl s.l. og var þar m.a. skipuð ný stjórn.

Lesa meira
 

Sjóðurinn Blind börn á Íslandi

Úthlutað verður styrkjum úr sjóðnum á Fyrsta vetrardag næstkomandi sem er 22.apríl 2010. Umsóknir um styrki þurfa að hafa borist eigi síðar en 20.apríl Lesa meira
 

AÐVENTUSKEMMTUN

Foreldradeild Blindrafélagsins boðar til aðventuskemmtunar í samstarfi við sjóðinn Blind börn á Íslandi sunnudaginn 6.desember klukkan .14.00 - 16.00 Lesa meira
 

Stoðflokkar



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica útlitshönnunútlitshönnun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.